Tómas I. Sleifsson skrifar um eignarrétt ofl.

Um mig

Ég heiti Tómas Ísleifsson og rek vefsíðuna landskuld.is.

Ég opnaði vefsíðuna árið 2017 með það markmið að skrifa um hlutföll milli sameignarjarða á Íslandi. Sumarið 2019 bættist við efni um orkumál Íslendinga, þar á meðal um Orkupakka 3, Brotkast, Frosta Logason: texta viðtalsins.

Í ársbyrjun 2024 birtist um tíma efni tengt forsetaframboði, en það efni var síðar fjarlægt af forsíðunni þar sem ég hef ekki haft nægan tíma til að halda utan um það samhliða öðrum verkefnum. Þá birtist einnig Morgunblaðsgrein 4.7.2025.

Aðaltilgangur vefsíðunnar er þó að koma á framfæri efni, heimildum og rökstuðningi sem varðar eignadeilur um Ytri-Sólheima í Mýrdal. Málið er flókið og byggir á heimildum sem ná langt aftur í tímann. Sérstök áhersla er lögð á lög um landskipti nr. 46/1941 og Hæstaréttarmál nr. 610/2007, ásamt skjölum, tilvísunum og sönnunargögnum sem varpa ljósi á málsatvik og meðferð þess.

Ég leitast við að setja efnið fram með leiðsögn, skýringum og skýrri uppbyggingu, þannig að það sé aðgengilegt þeim sem vilja kynna sér málið í heild eða einstaka þætti þess. Jafnframt deili ég hér efni um mig og mitt fólk, bæði í texta og myndum. Áhugamál mín eru meðal annars ferðalög, tónlist, sagnfræði, ættfræði og raunvísindi.

Tilgangur vefsíðunnar

Vefsíðan birtir efni sem tengist eignadeilum um Ytri-Sólheima í Mýrdal. Þótt deilan sjálf sé ekki langvarandi byggir hún á heimildum sem ná allt aftur til þjóðveldisaldar.

Kjarni málsins liggur ekki hjá nágrönnum jarðarinnar heldur hjá löggjafanum og dómsvaldinu, einkum lögum nr. 46/1941 og dómi Hæstaréttar í máli nr. 610/2007. Hér eru lögð fram sönnunargögn og lagalegur rökstuðningur til að varpa ljósi á framgöngu ríkisvaldsins og áhrif hennar á eignarrétt.

Lénsnafnið „landskuld“ er gamalt hugtak í íslensku máli og vísar til leigu sem leiguliði greiðir landsdrottni. Orðið kemur víða fyrir í sögulegum heimildum um jarðeignir og endurspeglar áherslu vefsíðunnar á eignarhald lands, lagastoð og eignarrétt.

Erlingur Brynjólfsson (1861-1927), “Læknir af guðs náð“, pdf-skjal: erlingur_brynjolfsson

Skyldulið

SKOÐA MYNDASAFN

Í tilefni af sextugsafmæli Lilju Arnardóttur, frænku minnar, þann 26. maí 2018 hef ég birt eftirfarandi myndaröð:

1. Erlingur og Hallbera á Sólheimum ásamt börnum árið 1905. Ísleifur yst til vinstri. 2. Erlingur Brynjólfsson. 3. Tómas og Margrét í Vík ásamt Tómasi syni sínum, um 1903. 4.  Tómas og Margrét um 1910. 5. Nemendur og kennarar barnaskólans í Vik um 1920. Tvíburarnir; Ágústa situr til vinstri og Lilja stendur við öxl hennar.

6. Ágústa og Lilja vorið 1920, fermingarmynd. 7. Ísleifur á Sólheimum um 1920. 8. Lilja 21 eða 22 ára. 9-10. Myndirnar af Lilju og Ísleifi samstæðar, teknar sama sumardag 1929 eða 1930. Og lífið brosir við – Ísleifur berbaka á gamminum Hæring.

6. Ísleifur og Hæringur í haustkalsa um 1935. 12. Lilja, Hallbera, Erlingur og Ísleifur árið 1941. 13. Ísleifur og börn í heyskap, líklega 1942 14. Lilja og dætur, síðsumars 1944. 15. Halla og Gréta.

16-18. Halla. 19. Halla, í Vík á sautjánda júní 1952. 20. Halla tvítug.

21. Ísleifur og Lilja með börnum í ágúst 1953, í aldursröð: Erlingur, Hallbera, Margrét og Tómas. 22. Afmælisbarn myndaraðarinnar, Lilja, árgömul á Óseyri í Stöðvarfirði. 23. Systur í sól sumarið 1960, Halla með Ísleif og Gréta heldur á Lilju. 24. Lilja 4.ra og Ísleifur 2.ja ára. 25. Sami dagur.

26. Sami dagur. 27. Lilja Tómasdóttir umpottar blómum sumarið 1962 og Halla hefur brugðið sér úr eldhúsinu, með svuntu! Gréta íhugul. 28. Elsa Arnardóttir á öðru ári sumarið 1963. 29. Lilja og Ísleifur Arnarbörn á Sólheimum 1969. 30.  Ísleifur, Njáll, Lilja og Sólborg Lilja sumarið 1969.

31. Örn skipstjóri á Ófeigi III, VE 324. 32. Á páskum 1969; Elsa, Örn, Lilja, Halla og Ísleifur. 33-34. Sama fólk á páskum. 35. Lilja á páskum.

36-44. Systkinin einnig á páskum. 45. Liljur, Ísleifur og Njáll sumarið 1969.

46. Lilja, Sólborg Lilja, Gréta, Njáll og Ísleifur, túnárar fangaðir. 47-50. Hirðing á Æsumýrarennum sumarið 1970: Lilja, Ísleifur og Gunnar.

51. Tommi. 52. Lilja og Erlingur Örn sumarið 1970. 53. Með ömmu á jólum 1970. 54-55. Elsa níu ára þann 30.12.1970.

56-57. afmælið. 58-59. Bræður í fimmtugsafmæli föður síns, 18.3.1972. 60. Ferming Lilju á páskum 1972.

61-74. Ferming Lilju á páskum 1972. 75. Vestmannaeyjar 24.1.1973.

76-80. Vestmannaeyjar 24.1.1973.

81. Vestmannaeyjar vorið 1973. 82. Dætrabörn Lilju Tómasdóttur eftir jarðsetningu hennar í ágúst 1973. 83-84. Halla og Örn með þremur barna sinna sumarið 1974. 85. Halla og Örn í Þorlákshöfn.